Aukin umsvif í Mjóeyrarhöfn kalla á stækkun

„Framundan er vinna við spennandi þróunarverkefni á svæðinu kringum Mjóeyrarhöfn en það stendur til að gera heildarhönnun fyrir þetta svæði og úttekt á þeim möguleikum sem þar eru fyrir hendi. Að okkar mati eru frábær tækifæri til staðar við að byggja upp grænan iðnað á svæðinu en fyrir hendi eru nokkrar lóðir sem hentugar eru til að koma upp nýjungum í atvinnulífi í sveitarfélaginu,“ segir Birgitta Rúnarsdóttir, verkefnastjóri hafna í Fjarðabyggð.
Ein stærsta vöruflutningahöfn landsins
Mjóeyrarhöfn stendur við norðanverðan Reyðarfjörð, miðja vegu milli þéttbýlisins í Reyðarfirði og á Eskifirði og er með stærri vöruflutningahöfnum landsins. Skammt frá Mjóeyrarhöfn er álver Alcoa Fjarðaáls og þjónar höfnin fyrirtækinu varðandi aðdrætti og útflutning á álafurðum. Höfnin var byggð upp samhliða því að álverið reis en með tilkomu hafnarinnar jókst vægi vöruflutninga til muna hjá Fjarðabyggðarhöfnum. „Mjóeyrarhöfn er enn í þróun sem eitt af vaxtarsvæðum sveitarfélagsins að því er varðar hafnsækna starfsemi,“ segir Birgitta en áfram verður unnið að því að hanna svæðið og skoða möguleika þess.
Bryggjukantur við Mjóeyrarhöfn er rúmir 380 metrar en Birgitta segir að vegna umsvifa í höfninni sé farið að huga að stækkun og sé það eitt af þeim stóru verkefnum sem framundan eru hjá Fjarðabyggðarhöfnum. „Það er brýnt að bæta aðstöðuna, núverandi höfn er býsna þétt setin farmskipum flesta daga ársins. Árið 2023 voru skipakomur til Mjóeyrarhafnar um 150 samtals og legudagar um 400 talsins. Flutt magn um höfnina var 1.351 þúsund tonn sem er 90% af öllu því magni sem flutt var um Fjarðabyggðarhafnir það ár.“
Nánar er fjallað um höfnina í nýútkomnu tölublaði Sóknarfæris.