50 milljarða verðmæti í eldinu

Deila:

Verðmæti eldisafurða fer á þessu ári í fyrsta sinn yfir 50 milljarða króna. Þetta kemur fram í greininu Radarsins, mælaborðs sjávarútvegsins. Um er að ræða 12,1% aukningu frá árinu í fyrra. Fyrra met er frá árinu 2022 þegar útflutningsverðmæti nam tæpum 49 milljörðum króna.

„Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í nóvember sem birtar voru í síðustu viku. Þar er einungis birt útflutningsverðmæti eldisafurða í heild og því liggur ekki fyrir sundurliðun niður á einstaka tegund í nóvember. Myndin hér að neðan sýnir því aðeins verðmæti eldisafurða í heild fyrir árið 2024.”

Fram kemur að vöxturinn hafi verið markviss í fiskeldinu síðustu ár. „Aukin framleiðsla í sjókvíaeldi og metnaðarfull áform um stórfellda uppbyggingu á landeldi munu áfram styrkja stöðu íslensks fiskeldis og styðja við efnahagslega hagsæld á Íslandi,” segir í greininni. Bent er á að búast megi við umtalsverði aukningu í landeldi næstu árin. Metárið 2024 muni því að líkindum aðeins bera titilinn um sinn.

Deila: