Systurskipin með fullfermi

Deila:

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu báðir fullfermi í heimahöfn í vikunni að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Vestmannaey landaði á þriðjudag og Bergur á miðvikudag. Rætt er við Birgi Þór Sverrisson skipstjóra á Vestmannaey í fréttinni.

„Þetta var bara fínasti túr en aflinn var mest ýsa. Við hófum veiðar út af Skarðsfjörunni og aflinn var bara góður til að byrja með. Síðan leituðum við að ufsa um tíma með litlum árangri. Þá var tekið eitt hol á Höfðanum og síðan endað á Víkinni. Það var fínasta veður allan túrinn. Það er ekki komið mikið af vertíðarfiski á þessar slóðir. Hann er seint á ferðinni enda sjórinn kaldur suður af landinu, “ sagði Birgir Þór.

Deila: