Gæslan sótti veikan skipverja

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna veikinda um borð í íslensku skipi sem statt var um 60 sjómílur norður af Hornströndum í gærmorgun. Þetta kemur fram í færslu á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar.
Fram kemur að áhöfnin á TF-GRO hafi tekið á loft á níunda tímanum en laust fyrir klukkan tíu hafi þyrlan verið komin að hlið skipsins.
„Áhöfn þyrlunnar byrjaði á að slaka tengilínu niður til áhafnar skipsins og sigmaður seig því næst um borð svo unnt væri að undirbúa sjúklinginn undir að vera hífður um borð í þyrluna. Hífingin gekk vel og skipverjinn var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík.”
Myndin sem fylgir þessari frétt er úr safni.