Ísprósentan að jafnaði lægri við eftirlit

Ísprósenta sex vigtunarleyfishafa við löndun á þorski virðist að jafnaði vera lægri þegar starfsmenn Fiskistofu hafa eftirlit með löndunum, samanborið við þegar ekkert eftirlit er viðhaft. Þetta má lesa út úr gögnum sem Fiskistofa hefur birt um eftirlit með ísprósentu.
Vorið 2017 tók gildi lagabreyting sem kveður á um að komi í ljós verulegt frávik á íshlutfalli við eftirlit skuli Fiskistofa standa yfir endurvigtun hjá viðkomandi aðila og á hans kostnað í allt að sex vikur. Í skýrslu Daða Más Kristóferssonar (nú efnahagsráðherra) og Birgis Þórs Runólfssonar fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, frá árinu 2020, kemur fram að frávikum hafi fækkað mjög eftir að Fiskistofa fór að birta gögn um endurvigtun árið 2015.
Fiskistofa hefur greint frá því að sex vigtunarleyfishafar hafi sætt sex vikna eftirliti á síðasta ári vegna frávika á íshlutfalli í fyrri löndunum áður en eftirlitsmenn Fiskistofu stóðu yfir endurvigtun.
Í fréttum RÚV frá 2017 og 2020, þar sem fjallað er um endurvigtun og ísprósentu, segir að sé ísprósenta óvenju lág, í samanburði við fyrri landanir, geti það verið til marks um að eitthvað sé óeðlilegt; að fiski geti í raun hafa verið landað framhjá með því að skrá hann sem ís.
Þegar rýnt er í ísprósentu sex fyrirtækja við löndunum á þorski á þessu ári, 2025, sést að hún er yfirleitt nokkuð lægri þegar eftirlit er viðhaft.
Auðlindin rýndi í samanburð á ísprósentu við landanir á þorski á yfirstandandi almanaksári. Athugið sérstaklega að þessi litla úttekt byggir á fáum mælingum og aðeins einni mælingu undir eftirliti. Hjá Þórsnesi eru vigtanir án eftirlits 7, hjá Skinney-Þinganesi 10, hjá Samherja 14, hjá Ísfélaginu 9, hjá Ísfélagi Vestmannaeyja í Þórshöfn 19 og hjá Brimi 4.
Í öllum tilvikum reyndist ísprósentan við eftirlitsferðir Fiskistofu lægri þegar kom að þorski, samanborið við meðaltal uppgefinnar ísprósentu þegar ekkert eftirlit var viðhaft.
Stærra úrtak þyrfti til að fá skýrari mynd af stöðu mála.
Myndin er úr safni og sýnir vel ísaðan afla á bryggju í Vestmannaeyjum.