Gagnrýna úthlutun á kvóta til djúpkarfaveiða

Deila:

Hafrannsóknastofnun gagnrýnir í langri grein á vef sínum þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar, fv. ráðherra, að gefa út veiðiheimildir til veiða á djúpkarfa á yfirstandandi fiskveiðiári. Veiðiheimildirnar voru gefnar  út til að liðka fyrir veiðum á gullaxi en karfinn kemur upp sem meðafli þegar þær veiðiaðferðir eru stundaðar.

Þann 21. nóvember 2024 gaf þáverandi matvælaráðherra út 3.800 tonna aflamark fyrir djúpkarfa fyrir fiskveiðiárið 2024/2025 en í júlí 2024 hafði þáverandi matvælaráðherra farið að ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ekki úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2024/2025.

„Ástæða fyrir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um ekkert aflamark (0 tonna ráðgjöf) fiskveiðiárin 2023/2024 og 2024/2025 er slæmt ástand stofnsins sem er metinn undir varúðarmörkum og nýliðun síðustu 15 ár eða svo hefur verið lítil sem engin. Þetta er staðfest bæði með gögnum úr stofnmælingum og úr afla fiskiskipa.”

Í greininni er ástand djúpkarfastofnsins rakið í löngu máli og forsendur ráðgjafar Hafró útskýrðar nánar.

Þar segir meðal annars:

„Það sem einkennir karfategundir er að mörg ár geta liðið milli stórra árganga. Þess á milli er nýliðun lítil eða mjög lítil. Hjá djúpkarfa hefur nánast engin nýliðun átt sér stað frá árinu 2010. Ekki er er vitað hvaða þættir stjórna nýliðun karfategunda, en hugsanlegt er að umhverfisaðstæður, eins og hitastig sjávar og sjávarstraumar, og frumframleiðni stjórni þar miklu. Þegar aðstæður eru óhentugar er líklegt að djúpkarfi sleppi úr hrygningu, eða lirfur og seiði nái ekki að dafna. Nýliðun gullkarfa og djúpkarfa hér við land virðist haldast í hendur. Síðustu stóru árgangar þessara tegunda voru árið 1985 og 1990.”

Enn fremur segir í greininni:

„Til að hindra frekari hnignun djúpkarfastofnsins við Ísland er nauðsynlegt að draga úr veiðum en ekki auka þær. Því má ná með því að fylgja ráðgjöf og reyna að draga sem mest úr meðafla djúpkarfa við aðrar veiðar, þá sérstaklega í gulllax- og grálúðuveiðum.”

Lagt er til að breyta veiðiaðferðum í gullaxi og grálúðu. Til samstarfs um innleiðingu slíkra breytinga sé Hafró reiðubúið.

 

Deila: