Methagnaður hjá Arctic Fish

Afkoma á síðasta ársfjórðungs 2024 var „mjög viðunandi” hjá Arctic Fish og árið 2024 skilaði því mesta rekstrarhagnaði [EBIT] í sögu fyrirtækisins. Hagnaður var af rekstri félagsins.
Þetta kemur fram í frétt á vef fyrirtækisins. Þar segir að 3,456 tonnum hafi verið slátrað í fjórðunginum samanborið við 2,529 tonn fyrir sama ársfjórðung á síðasta ári. „Félagið seldi afurðir fyrir um 11,7 milljarða árið 2024, rekstrarhagnaður var 2,1 milljarðar og niðurstaða rekstrar var jákvæð um 383 milljónir.”
Sjá einnig: Erfitt ár að baki hjá Arnarlaxi
Fram kemur að félagið stefni á að slátra 25 þúsund tonnum árið 2029. Félagið hafi tryggt sér nægjanlegt magn seiða til að standa við þau markmið
Félagið hefur gefið út að það áætli að slátra um 25.000 tonnum á árinu 2029 og hefur félagið tryggt nægjanlegt magn seiða til að standa við þau markmið með eigin framleiðslu og langtímasamningum um kaup á seiðum frá öðrum framleiðendum.