Segir sjómenn og sveitarfélög hlunnfarin

„Mitt mat er að eftir að stjórnvöld hafa komist að þessari niðurstöðu, að verð á uppsjávarafla sé alls ekki að endurspegla rétt markaðsverð þá kalli það á að skipuð verði nefnd af hálfu Alþingis sem rannsaki hversu mikið er búið að stela af íslenskum sjómönnum á liðnum árum og áratugum í ljósi þessara staðreynda. Munum að það er ekki bara verið að stela af sjómönnum heldur einnig af sveitarfélögum sem verða af umtalsverðum útsvarstekjum þegar ekki er verið að greiða sjómönnum rétt markaðsverð.“
Þetta segir verkalýðsforkólfurinn Vilhjálmur Birgisson í færslu á Facebook í tengslum við drög að frumvarpi ríkisstjórnarinnar um veiðigjöld. Til stendur að leiðrétta veiðigjöld þannig að þau endurspegli raunverulegt aflaverðmæti. „Nú þarf að láta kné fylgja kviði og leiðrétta laun sjómanna sem hafa verið höfð af þeim með ólögmætum og óréttlátum hætti. Ég tek því undir orð fjármálaráðherra, rétt skal vera rétt. Og ég trúi ekki öðru en að ríkisstjórn sem kennir sig við félagshyggju, jöfnuð og réttlæti hjálpi sjómönnum að ná fram réttlæti í þessu máli.“