Gott súrefni skiptir öllu máli í fiskeldinu

„Þjónusta við fiskeldi er stór þáttur í okkar starfsemi og í reynd eru öll fyrirtæki í greininni í okkar viðskiptavinahópi. Staðreyndin er sú að súrefni í fiskeldi er þáttur sem hefur mikil áhrif á fiskinn, vöxt hans og heilbrigði. Hreint súrefni og góð innlosun eykur vöxt, og minnkar fóðurnotkun. Gott súrefni skiptir því öllu máli í fiskeldi,“ segir Alda Hlín Karlsdóttir, sölustjóri Linde Gas ehf. Fyrirtækið er eini framleiðandi fljótandi súrefnis hér á landi og er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Linde sem er stærsti iðnaðargasframleiðandi heims með 50 þúsund starfsmenn. Alda Hlín segir fyrirtækið búa yfir gríðarlegri reynslu þegar kemur að lausnum í fiskeldi og hafi hannað búnað allt frá sjöunda áratug síðustu aldar. Þjónusta við súrefniskaupendur er stór þáttur í starfseminni á Íslandi í takti við vöxt fiskeldsins, sér í lagi landeldis.
Hreint innlent hágæða súrefni
Súrefnið sem Linde Gas framleiðir er 99,8% hreint og því hágæða vara og stórir notendur eru t.d. heilbrigðisstofnanir og fiskeldisfyrirtæki. Þó eldisfyrirtækin séu að jafnaði með góðar birgðir af súrefni á lager á sínum stöðum þá segir Alda að fyrir hafi komið að súrefnisbílar frá Linde Gas hafi verið í forgangsakstri með súrefni til viðskiptavina til að koma í veg fyrir möguleg áföll vegna súrefnisskorts. Líf fiskanna er í húfi. En það er ekki einungis súrefnið sjálft sem Linde Gas býður fiskeldisfyrirtækjunum heldur einnig búnaður til innlosunar á súrefni í eldistankana.
„Markmiðið með okkar vörum og þjónustu er að hjálpa fiskeldisfyrirtækjunum að skapa bestu aðstæður til að ala fisk. Við sjáum hönnun og uppsetningu á vönduðum SOLVOX® búnaði frá Linde fyrir innlosun á súrefninu, búnaði sem tryggir góða dreifingu súrefnisins og þannig verður um leið góð hringrás sem fær fiskinn til að synda á móti straumnum. Þannig verður fiskurinn heilbrigðari, súrefnisdreifingin verður jafnari í öllum tanknum og allt þetta stuðlar síðan að betri vexti, nýtingu fóðurs og fleiri þáttum. Þarna erum við að tala hvort heldur sem er um fisk sem er í seiða- og áframeldi á landi eða eldi á seiðum sem eru á leið í sjókvíaeldi. Nýjasta viðbótin í SOLVOX® vörulínunni er sjálfvirkur búnaður til innlosunar á súrefni við tæmingu á fiskitönkum og við neyðaraðstæður, SOLVOX Dropin. Það eru einingar sem síga rólega niður í fiskitankana við tæmingu eða ef t.d. kemur til rafmagnsleysis. Hver eining getur losað allt að 50 kíló á klukkustund. Í neyðaraðstæðum er mikilvægt að bregðast hratt við þar sem mínútuspursmál er uppá líf eða dauða. Hver Dropin er sjálfstæð eining sem stýrir og dreyfir súrefni til að halda réttu magni við breyttar aðstæður, búnaðurinn sér sjálfur um að áætla magn súrefnis sem þarf hverju sinni. Þessi virkni stuðlar að betri aðstæðum og minni streytu fyrir fiskinn. Það er því allt að vinna að velja besta mögulegan búnað á þessu sviði,“ segir Alda.
Þá bendir hún á að norsk rannsókn hafi leitt í ljós að búnaðurinn frá Linde skilar beinum sparnaði í raforkunotkun. „Hönnunin á búnaðinum okkar og hreinleiki súrefnisins getur skilað eldisfyrirtækjunum allt að 10% sparnaði í heildarraforkunotkun, sem er verulegt þegar við erum að tala um eldisfyrirtæki af þeirri stærðargráðu sem nú eru að byggjast upp í landeldinu,“ segir Alda. Hún bætir við að það sé ekki óvanalegt að landeldisfyrirtæki noti meira en 8 kílóvattstundir til að framleiða kíló af fiski. Þannig að hér er verið tala um verulegar fjárhæðir.
Risavaxinn súrefnisbúnaður hjá First Water
Á margan hátt segir Alda að líkja megi saman aðstæðum til landeldis á Íslandi við vínframleiðslu í Frakklandi. „Hér höfum við allar náttúrulegar aðstæður með okkur; jarðsjóinn, orku og vatn. Þessar aðstæður eru auðlind fyrir fiskeldið,“ segir Alda. Linde rekur nýsköpunarmiðstöð fiskeldisdeildar í Álasundi í Noregi. Þar starfar hópur sérfræðinga sem vinnur að verkefnum um allan heim. „Starfsmenn Linde Gas koma að málum strax á hönnunarstigi landeldisstöðvanna enda þarf að sérhanna hverja lausn út frá aðstæðum á hverjum stað, stærð eldistanka, lífmassa, áætlun um stærð fisks og öðru slíku. Að baki er því mikil nákvæmnis- og hönnunarvinna hjá okkur til að tryggja sem allra bestan árangur,“ segir hún en þessa dagana er einmitt verið að taka í notkun búnað frá Linde í einni af stærstu landeldisstöðvum landsins, First Water við Þorlákshöfn.
„Sérstaða þessa verkefnis fyrir okkur er stærðargráðan á búnaðinum. Þetta er stærsti búnaður til innlosunar á súrefni sem Linde hefur framleitt. Hjá First Water eru tankar sem eru 25 og 28 metrar í þvermál sem þýðir að innlosunarbúnaðurinn okkar er um 10 metrar að lengd. Það er því mikil tilhlökkun hjá okkur að sjá þessi miklu súrefniskerfi fara í notkun og við höfum átt frábært samstarf við First Water í þessu verkefni þeirra sem er stærra en við höfum áður tekist á við,“ segir Alda Hlín Karlsdóttir.