460 tonna rækjukvóti við Snæfellsnes

Deila:

Hafrannsóknastofnun hefur gefið út ráðgjöf varðandi rækjuveiðar við Snæfellsnes fyrir tímabilið frá 1. maí 2025 til 15. mars 2026. Samkvæmt nýtingarstefnu sem miðar að því að hámarka afrakstur til lengri tíma litið, leggur stofnunin til að heildarafli rækju verði ekki meiri en 460 tonn. Þetta er aukning um 23% miðað við síðustu ráðgjöf, en veiðiálag hefur verið undir kjörsókn (Fproxy) undanfarin ár.

Stofnvísitala rækju hefur verið töluvert lægri á tímabilinu 2017-2025 en hún var á árunum 2008-2016. Þá hefur vísitala ungrækju verið lág allt frá árinu 2014. Að sama skapi hefur verið lítið um stærri þorsk og ýsu (2 ára og eldri), en mikið hefur verið um eins árs ýsu á svæðinu frá árinu 2020.

Deila: