Stýrimaður flutningaskipsins ölvaður

Stýrimaður flutningaskipsins Longdawn, sem sigldi á strandveiðibát við Garðskaga fyrr í maí, reyndist ölvaður við handtökuna. Hann sigldi af vettvangi slyssins. Smábátnum hvolfdi en annar strandveiðimaður bjargaði manninum úr sjónum.
Það getur varðað allt að átta ára fangelsi að sigla frá manni í sjávarháska.
Í farbannsúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur frá 17. maí kemur fram að öndunarsýni frá stýrimanninum hafi reynst jákvætt en einnig reyndist sýni jákvætt fyrir áhrifum kannabiss og slævandi efna.
Landsréttur staðfesti úrskurð héraðsdóms í dag þann 21. maí og birti hann í dag.