Hvalur sækir um hvalveiðileyfi

Deila:

Hvalur hf. hefur sótt um rekstrarleyfi til hvalveiða til næstu fimm ára. Í erindi til matvælaráðuneytisins er vísað í álit umboðsmanns Alþingis um að hverjum sé frjálst að stunda þá atvinnu sem hann kýs. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu.

Þar segir að Hvalur hafi jafnframt bent á að fyrirtækið hafi fjárfest í þróun og betrumbótum veiðibúnaðar og veiðiaðferða á grundvelli tækninýjunga. Það hafi skilað marktækum breytingum til batnaðar. Þess sé vænst að afgreiðslu leyfisins verði hraðað.

Deila: