Orkuskiptaverkefni undir stjórn Verkís

Deila:

GAMMA-nýsköpunarverkefnið snýst um að þróa og prófa nýsköpunarlausnir í orkuskiptum með endurbótum á flutningaskipti í rekstri – og koma svo lausnum á markað. Á vef Verkís kemur fram að um sé að ræða 2,5 milljarða króna orkuskiptiverkefni sem fyrirtækið leiðir.

GAMMA-verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu svo fyrirtæki og vísindamenn geti þróað tæknilausnir og breytt ítölsku flutningsskipi til að nýta rafeldsneyti í stað jarðefnaeldsneytis fyrir hluta af orkuþörf skipsins.

Auk verkefnastjórnunar sér Verkís að sögn um lagnahönnun fyrir rafeldsneytið, eldvarnir, brunaöryggi og áhættustjórnun, auk þess að eiga þátt í hönnunarstjórnun, hönnun eldsneytiskerfis og lífsferilsgreiningu.

„Fyrir hönd alls hópsins og samstarfsaðila get ég sagt að við erum afar stolt og þakklát því að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur valið að styðja við þetta verkefni að gera alþjóðlegar siglingar umhverfisvænni. Við munum setja nýjan tækjabúnað um borð í flutningaskip og prófa meðan skipið er í flutningum á milli landa og sanna að hægt sé að nota eldsneytiskerfi sem gengur fyrir rafeldsneyti í stað þess að nota jarðefnaeldsneyti á varaaflvél skipsins. Ef það gengur eftir væri næsta skref að skipta um aðalvél skipsins fyrir full orkuskipti. Verkefnið er mjög framsækið og getur gjörbylt orkuskiptum á sjó,“ er haft eftir Kjartani Due Nielsen, nýsköpunarstjóra hjá Verkís.

Ítarlega er fjallað um verkefnið hér.

Deila: