Harðfiskurinn þjóðartákn Íslendinga

Deila:

Harðfiskurinn má segja að sé hálfgert þjóðartákn Íslendinga. Hann er sannkallað ofurfæði því hann er ekki bara meinhollur heldur einnig bragðgóður og stórskemmtilegt að borða hann. Stjörnufiskur er gamalgróið fyrirtæki og stofnað árið 1988. Ekki alls fyrir löngu, eða í janúar 2016, tóku félagarnir Guðni Már Þorsteinsson og Þorlákur Grímur Halldórsson við rekstri þess.

Stjörnufiskur sérhæfir sig annars vegar í framleiðslu á harðfiski og svo bitafiski, sem er harðfiskur verkaður í handhægum bitum. „Harðfiskurinn er frábær í millimál á meðan bitafiskurinn kemur algerlega í staðinn fyrir snakk og annars konar nasl,” segir Guðni. Báðar vörurnar eru gerðar úr íslenskum þorski sem keyptur er af markaði og beint af bátnum sem Þorlákur gerir út á Grindavík. Framleiðslan er sömuleiðis öll staðsett þar.
Mynd og texti fenginn úr dv.is

Deila: