437 milljónum verður úthlutað úr Fiskeldissjóði

Deila:

Sveitarfélög þar sem sjókvíaeldi er stundað eru hvött til að sækja um syrki í Fiskeldissjóð. Þetta kemur fram í frétt á vef Stjórnarráðsins. Sveitarfélögin eru hvött til að kynna sér þær reglur sem um úthlutnina gildir. Hægt er að sækja um til 6. mars en 437 milljónir eru til úthlutunar.

Fram kemur að sjóðurinn starfi á grundvelli 7. gr. laga nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Sjóðnum er ætlað að veita sveitarfélögum styrki til uppbyggingar innviða, þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað, og styrkja þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum. Stjórn sjóðsins starfar eftir starfsreglum sjóðsins. Til úthlutunar á árinu 2024 eru kr. 437.200.000.

Við úthlutun styrkja úr sjóðnum er sérstaklega horft til verkefna sem snúa að:

a) Styrkari samfélagsgerð (menntun, menning, íbúaþróun)

b) Uppbyggingu innviða (atvinnulíf, þjónusta)

c) Loftslagsmarkmiðum og umhverfisvernd (fráveita, orkuskipti, vatnsveita)

d) Tengingu við sjókvíaeldi (hafnir, aðstaða í landi)

e) Nýsköpun hverskyns, tengd ofangreindum þáttum

Nánar hér.

Deila: