Alþjóðlegt samstarf í rannsóknum á örplasti

Deila:

Nýlega var komið fót alþjóðlegu samvinnuverkefni til að styrkja samvinnu í örplastsrannsóknum en verkefnið styrkt af uppbyggingarsjóði EES og Noregs. Egill Antonsson, sérfræðingur í umhverfisvöktun, er fulltrúi Hafrannsóknastofnunar í verkefninu.

Þetta kemur fram á vef Hafró. Þar segir að markmið verkefnisins sé að bæta rannsóknarinnviði og styrkja samvinnu milli vísindamanna í Eistlandi, Finnlandi, Íslandi og Lettlandi á sviði rannsókna á örplasti í umhverfinu. Verkefnið sé vettvangur fyrir þverfaglega umræðu og ætlunin sé að leggja drög að frekara samstarfi í örplastsrannsóknum.

„Fyrsti fundur hópsins var haldinn á Íslandi og voru umræður frjóar um áherslur í örplastsrannsóknum og gafst þátttakendum færi á bera saman bækur sínar. Fyrsta aðgerð samstarfsaðila var vettvangsferð til Meðalfellsvatns í Kjós þar sem sýnatökuaðferðir á örplasti frá yfirborðsvatni og meðferð tækja til örplastsýnatöku var æfð,” segir á vefnum.

Deila: