Skipti á aflamarki – tilboð óskast

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki í ýmsum tegundum í stað þorsks. Mest era f gullkarfa, djúpkarfa og grálúðu í boði.

Í boði er neðangreint aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 200,94 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn opnar klukkan 8:00 þriðjudaginn 10. janúar 2017. Ekki koma til álita tilboð þar sem aflamark sem boðið er, nær ekki 40% þorskígilda þeirrar tegundar sem óskað er eftir.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/gjaldskra/ ber að greiða 12.200 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Fisktegund Þíg Aflamark  
Gullkarfi 0,69 577.700 kg
Blálanga 0,56 86.400 kg
Gulllax 0,41 418.000 kg
Grálúða 2,65 659.640 kg
Skarkoli 0,67 211.060 kg
Langlúra 0,48 28.280 kg
Sandkoli 0,19 23.920 kg
Kolmunni 0,09 7.949 tonn
Norsk-íslensk síld 0,19 5.456 tonn
Úthafsrækja 1,53 217.000 kg
Þorskur í norskri lögsögu 1,00 309.116 kg
Litli karfi 0,32 79.000 kg
Úthafskarfi 0,91 123.329 kg
Djúpkarfi 0,85 685.000 kg

 

Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðasmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 16:00 þriðjudaginn 17. janúar 2017.

 

Deila: