Misjafn gangur á makrílveiðum

Deila:

Íslenski makrílveiðiflotinn færði sig úr íslensku lögsögunni í Smuguna eftir síðustu helgi, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar.

Þar segir að Vilhelm Þorsteinsson EA hafi komið með 1.260 tonn til Neskaupstaðar á miðvikudag í síðustu viku. Fiskurinn úr Vilhelm var smærri en sá fiskur sem fékkst í íslensku lögsögunni eða um 380 grömm. Annars virðist fiskurinn sem fæst í Smugunni vera misjafn að stærð.

Fram kemur að Börkur NK hafi komið til Neskaupstaðar með 1700 – 1800 tonn á föstudag.

Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra á Berki, sem ber að veiðarnar gangi misjafnvlega. „Stundum koma góð skot en svo getur verið lítið þess á milli og það fer töluverður tími í leit. Fiskurinn er afar fljótur í förum og segja má að allar veiðifréttir á makrílmiðunum séu gamlar fréttir. Það getur verið góð veiði á einum stað þessa stundina en þá næstu er allur fiskur horfinn. Við vorum að veiðum austan til í Smugunni um 30 – 40 mílur frá færeysku línunni. Skipin í okkar veiðisamstarfi fengu mjög gott skot á miðvikudag en síðan hefur verið minna að fá og töluvert leitað. Fiskurinn sem við erum með núna er heldur stærri en veiddist fyrst eftir að skipin færðu sig í Smuguna en hann er um 460 grömm. Það er minni áta í fiskinum þarna en var í fiskinum sem veiddist í íslensku lögsögunni og það er gott,” er haft eftir Hálfdani.

Deila: