Vilja ráða veiðieftirlitsmann fyrir norðan

Fiskistofa óskar eftir að ráða jákvæðan og drífandi einstakling í starf deildarstjóra veiðieftirlitssviðs á Akureyri. Þetta er auglýst á vef stofnunarinnar. Um fullt starf er að ræða og æskilegt viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfið heyrir undir sviðsstjóra veiðieftirlits.
Deildarstjóri sjóeftirlits ber ábyrgð á starfsemi ákveðinna starfsstöðva Fiskistofu og hefur mannaforráð veiðieftirlitsmanna á umræddum starfsstöðum, þar með talið verkaskiptingu og daglegum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Yfirumsjón á daglegri umsýslu sviðsins í samvinnu með deildarstjóra landeftirlits og sviðsstjóra veiðieftirlits
-
Yfirumsjón með sjóeftirliti
-
Afleysing deildarstjóra landeftirlits
-
Áætlanagerð, markmiðasetning og eftirfylgni
-
Stjórnun og stuðningur við mannauð
-
Áhættugreining í þágu veiðieftirlits og áhættustýrðu veiðieftirliti
-
Þróun veiðieftirlits og hagnýtingu tækninýjunga í eftirliti
-
Samskipti við stjórnvöld og hagaðila