Áhersla á ýsuveiði

Deila:

Bergur VE kom til löndunar í Neskaupstað í gærmorgun og í kjölfarið kom Vestmannaey VE til hafnar. Afli skipanna var mestmegnis ýsa en einnig dálítill þorskur. Frá þessu greinir á vef Síldarvinnslunnar.

Þar er rætt við Jón Valgeirsson, skipstjóra á Bergi, sem segir að veitt hafi verið út af Austfjörðum í fínasta veðri. „Við byrjuðum á Glettingi og fengum þar ágætt af ýsu. Síðan var haldið á Gerpsiflak og þar fékkst ýsa blönduð þorski. Við restuðum síðan á Breiðdalsgrunni og við Hvalbakinn,” segir Jón en Birgir Þór Sverrisson á Vestmannaey hefur svipaða sögu að segja.

Skipstjórarnir gera ráð fyrir að veitt verði áfram á Austfjarðamiðum og veruleg áhersla verði lögð á ýsuveiði.

Deila: