Ágæt bókunarstaða fyrir 2025

Deila:

Jóhanna Tryggvadóttir, verkefna- og markaðsstjóri Hafnasamlags Norðurlands.

„Liðið sumar gekk mjög vel hjá okkur og bókunarstaðan fyrir árið 2025 lítur ágætlega út,“ segir Jóhanna Tryggvadóttir, verkefna- og markaðsstjóri Hafnasamlags Norðurlands í nýju tölublaði Sóknarfæris. Tekjur samlagsins af komum skemmtiferðaskipa nýliðið sumar námu um 884 milljónum króna. Skipakomur voru samtals 258 til Akureyrar, Hríseyjar og Grímseyjar og farþegar um borð voru 258 þúsund talsins. Flest skipanna komu við á Akureyri, 204 í allt, 42 stoppuðu við Grímsey og 12 við Hrísey. Farþegar eru flestir frá Bandaríkjunum, Þýskalandi og Kanada.

Jóhanna segir að mikið hafi verið lagt í framkvæmdir undanfarin ár á hafnarsvæðinu, bæði á bryggjunum og bílastæðum. „Merkingar hafa verið bættar með öryggi farþega og starfsfólks að leiðarljósi. Þá höfum við bætt aðstöðu fyrir þá ferðaþjónustuaðila sem starfa á hafnarsvæðinu í tengslum við skipakomur,“ segir hún og bætir við að Torfunefið sé í mikilli uppbyggingu en stefnt sé að því að taka á móti minni skemmtiferðaskipum við nýja Torfunefsbryggju við miðbæ Akureyrar næsta sumar.

Bæta flæði ferðamanna og fækka álagstoppum

Hafnasamlag Norðurlands setti sér það viðmið fyrir sumarið að taka ekki á móti fleiri en 5 til 7 þúsund farþegum skemmtiferðaskipa á hverjum degi og segir Jóhanna það hafa gengið eftir. „Okkur tókst einnig að draga í sundur komur skemmtiferðaskipanna á þann hátt að tími hefur verið lengdur á milli þess sem skipin leggjast að bryggju. Með því er hægt að jafna flæði ferðamanna og fækka álagstoppum á ákveðnum svæðum.“ Jóhanna nefnir að verslun og ferðaþjónusta hafi vaxið í talsverðum mæli á Norðurlandi undanfarin ár í takt við fjölda skipa sem þangað koma. „Við heyrum af tilfellum þar sem allt að 80-90% ársafkomu ferðaþjónustufyrirtækja megi tengja beint við aukinn fjölda farþegar skemmtiferðaskipa,“ segir hún.

Nánar er rætt um málefni hafnarinnar í blaðinu.

Deila: