Ekki útlit fyrir loðnuveiði

„Það er því fyrirséð að þessar mælingar sem lokið er við nægja ekki til að breyta fyrri ráðgjöf um að engar veiðar verði leyfðar veturinn 2024/2025,” segir í frétt á vef Hafró um horfur í loðnumælingum við landið.
Heimaey, Polar Ammassak og Barði hafa ásamt Árna Friðrikssyni leita að loðnu frá 16. janúar sl. Veður hafa tafið fyrir mælingum að einhverju leyti en ekki haft teljandi áhrif á niðurstöður þeirra. Mælingar eru núna langt komnar og einungis mælingar Árna Friðrikssonar úti af Vestfjörðum sem eftir standa og munu þær klárast um eða eftir helgi, að því er greinir frá á vef Hafró fyrir helgina.
„Fyrir austan land varð vart við fullorðna loðnu á nokkuð stóru svæði með mesta þéttleika syðst, sjá mynd hér neðar. Einnig var fullorðin loðna norðvestan til á athugunarsvæðinu en nánast ekkert sást af henni fyrir Norðurlandi. Niðurstöður bergmálsmælinganna sýna að heildarmagn fullorðinnar loðnu sem myndar veiðistofn vertíðarinnar, er aðeins um tveir þriðju þess sem mældist í september 2024. Það er því fyrirséð að þessar mælingar sem lokið er við nægja ekki til að breyta fyrri ráðgjöf um að engar veiðar verði leyfðar veturinn 2024/2025. Þetta er skrifað með þeim fyrirvara að mælingum er ekki lokið fyrir vestan land.”