Tilrauneldi á hlýra lofar góðu

Deila:

„Ein af ástæðunum fyrir því að menn vilja hlýra fremur en steinbít til eldis er að hann vex hraðar en steinbítur og er stærri. Svo er hann meira húsdýr og ekki eins grimmur,“ segir fiskeldisfræðingurinn Hreinn Sigmarsson, sem stendur að baki spennandi tilrauneldi á hlýra.

Hreinn, í samstarfi við norska fiskeldisfyrirtækið Denvo og Hafrannsóknastofnun starfrækir í aðstöðu Hafró í Grindavík tilraunaeldi með hlýra. Útlit er fyrir að fyrstu hrognin klekist út um mánaðamótin apríl og maí. Fyrirtækið heitir Denvo Wolffish Iceland ehf. en með honum í liði er Þórólfur Sigurðsson viðskiptafræðingur. Tómas Árnason sér um líffræðilegt eftirlit og stýrir eldisumhverfinu í eldisstöð Hafró, að sögn Hreins.

Árið 2023 fór Hreinn að sækja lifandi fisk. „Það gekk brösulega að fá menn til að taka þetta verkefni að sér – að skila mér hlýra á lífi. Það var ekki fyrr en ég bauð sjómönnunum bjór að launum sem ég fór að fá fisk,“ segir Hreinn og hlær. „Ég fékk slatta af fiski frá tveimur bátum en af þeim lifðu 27. Þessir fiskar gáfu okkur fyrsta klak núna í haust. Við eigum nú 15-18 þúsund augnuð hrogn í Grindavík,“ segir hann en hrygnurnar voru kreistar 9. og 16. nóvember. Hlýri, eins og steinbítur, hefur innri frjóvgun í náttúrunni.

Hrognin þurfa 900 til 950 daggráður til að klekjast út. Hreinn segir að stórum áfanga verði náð ef startfóðrun – fyrsta fóðrun seiðanna – gangi vel. Ekki hafi gengið nógu vel að nota þurrfóður eingöngu en notkun artemíu (tegund saltvatnsrækju) hafi gefið góða raun. „Starfsmenn Hafró klöktu fyrir nokkrum árum og startfóðruðu steinbítshrognum og fengu góða lifun með því að notast við lifandi fóður.“

Ítarlega er rætt við Hrein og fjallað um þetta tilraunaeldi í nýútkomnu tölublaði Sóknarfæris.

Tómas Orri Hreinsson háfar nýveiddan hlýra.

Deila: