Arctic Fish hagnaðist um 390 milljónir

Deila:

Arctic Fish hagnaðist um 390 milljónir króna á síðasta ári, að því er fram kemur í ársskýrslu félagsins. Þar segir að fyrirtækið hafi slátrað 10.667 tonnum af laxi. Samtals sleid félagið fisk fyrir um tólf milljarða króna.

Í skýrslunni er haft eftir forstjóranum Stein Ove Tveiten að mikilvægum áföngum hafi verið náð á árinu. Fyrirtækið hafi náð frábærum árangri í baráttu við laxalús. Fyrirtækið standi vel og sjái fram á áframhaldandi vöxt.

„Arctic Fish er í góðri stöðu til að nýta sér hagstæð markaðsskilyrði og vaxandi eftirspurn á heimsvísu eftir sjálfbærum sjávarafurðum af háum gæðum. Á meðan vöxtur í framboði á laxi á heimsvísu er talinn verða hóflegur, hefur fiskeldi á Íslandi umtalsverða möguleika á útvíkkun, stutt af hagstæðri þróun í regluverki og framförum í rekstri. Samkeppnishæfur og styðjandi rammi er nauðsynlegur fyrir fiskeldisiðnað Íslands til að ná vaxtarmöguleikum sínum, sem gerir framleiðendum eins og Arctic Fish kleift að skila langtíma efnahagslegum, umhverfislegum og félagslegum ávinningi. Með 25% af framleiðslugetu Íslands og stefnumiðaðar áætlanir um að besta rekstur okkar enn frekar, er Arctic Fish í góðri stöðu til að ná umtalsverðum hluta af þessum vexti. Áhersla okkar á sjálfbærni, kostnaðarhagkvæmni og að afhenda hágæða vörur tryggir seiglu á síbreytilegum markaði. Þegar horft er fram á veginn mun Arctic Fish halda áfram að nýta sér samþætta virðiskeðju sína og bestu starfshætti til að ná vaxtarmarkmiðum sínum og styrkja stöðu sína í alþjóðlegum fiskeldisiðnaði. Með því að jafnvægisstilla rekstrarfærni og sjálfbæra þróun stefnum við að því að skila langtímavirði til hluthafa okkar, hagsmunaaðila og samfélaga,” segir í niðurlagi pistilsins – í lauslegri íslenskri þýðingu.

Deila: