Mikil sjávarflóð í Grindavík

Deila:

Tjón varð í miklum sjávarflóðum í Grindavík í síðustu viku. Skemmdir urðu á rafbúnaði, bauja slitnaði upp og sjór flæddi inn í þrjá bíla, svo eitthvað sé nefnt.

Sigurður Arnar Kristmundsson, hafnarstjóri Grindavíkurhafnar, sagði í samtali við Víkurfréttir á föstudagað nú væru starfsmenn hafnarinnar og frá áhaldahúsi bæjarins að kanna ástand og aðstæður eftir flóðin í gærkvöldi.

Þrír bátar við Eyjabakka voru í tíma í hættu en flóðið í gærkvöldi hafði mest áhrif á Kvíabryggju og Eyjabakka. Stærstu fyllurnar sem komu inn í höfnina tóku með sér fiskikör alla leið inn á hátíðarsvæðið við Kvikuna. Flóðið var það mesta í áratugi.

Vitað er að sjór gekk á land bæði á Hópsnesi og í Bótinni en hafnarstjóranum var ekki kunnugt um ástandið t.d. golfvöllinn vestan við við Grindavík en þar liggur landið lágt.

Myndatökumaður Víkurfrétta tók upp myndskeiðið með fréttinni um kl. 20 í gærkvöldi en þá var mesta flóðhæðin yfirstaðin.

https://youtu.be/_AL2wm82teA

 

Deila: