Forréttindi að taka þátt í Samherjaævintýrinu

Deila:

Óskar Ævarsson hefur ákveðið að láta af störfum sem framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Evrópuútgerðar Samherja. „Var búinn að lofa sjálfum mér að hætta að sofa með farsímann á náttborðinu þegar ég yrði sextugur,“ segir Óskar í samtali á heimasíðu Samherja.

 

Óskar Ævarsson.

Óskar Ævarsson er búinn að starfa með og vera í kringum þá Samherjafrændur Þorstein Má og Kristján í yfir 30 ár. Leiðir þeirra lágu fyrst saman í Slippnum í Njarðvík en Óskar hóf störf hjá Samherja í maí 1989 sem yfirvélstjóri á Hjalteyrinni EA310 og var síðan yfirvélstjóri á ýmsum skipum Samherja allt þar til hann kom í land árið 1997. Hann flutti til Grindavíkur og tók við rekstri Fiskimjöls & Lýsis, en það fyrirtæki var þá í eigu Samherja en rann síðar inn í Samherjasamstæðuna, meðan Óskar hafði yfirumsjón með rekstrinum. Árið 2006 lagði Óskar síðan land undir fót og flutti með fjölskylduna í nágrenni Cuxhaven í Þýskalandi, þar sem hann réð sig sem framkvæmdastjóra útgerðasviðs EU útgerðar Samherja. Þar hefur Óskar staðið í brúnni í nærri 14 ár og meðal annars haft yfirumsjón með nýsmíðaverkefnum á sama tíma og hann hefur verið vakinn og sofinn yfir daglegri útgerð skipa Samherja, sem eru gerð út undir mismundandi þjóðfánum Evrópusambandsríkja.

,Þetta eru búin að vera góð ár og í raun forréttindi að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í ,,Samherjaævintýrinu,,.  Ég er búinn að starfa með þeim frændum nærri frá upphafi þegar að þeir hófu rekstur á Samherja og því verið svo heppinn að vera þátttakandi í þessu ævintýri með þeim ásamt mörgu öðru góðu fólki. Þessi tími hefur verið mjög skemmtilegur en líka mjög krefjandi og ég var búinn að lofa sjálfum mér og Andreu konu minni, sem hefur alltaf stutt mig 100% og gefið 100% svigrúm og skilning til að ég gæti sinnt þessu krefjandi starfi, að VIÐ myndum hætta að sofa með farsímann minn á náttborðinu þegar ég yrði sextugur“.

Óskar er spurður: “Hvað tekur þá við hjá ykkur hjónum, heldur þú að konan verði ekki leið á þér?”
„Nei það held ég ekki, ég er svo skemmtilegur“ segir Óskar hlægjandi en við skulum sjá til, ef ég þekki þá Samherja frændur rétt týnist eitthvað til.“ segir Óskar brosandi.

Þorsteinn Már og Kristján þakka Óskari fyrir frábært og einstaklega farsælt samstarf í gegnum árin.

Samstarfsmenn til margra ára. Frá vinstri: Graham Jones lögfræðingur, Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja, Haraldur Grétarsson framkvæmdastjóri DFFU, Óskar Ævarsson útgerðarstjóri DFFU, Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri Samherja.

 

Deila: