Ekki séð svona stóran kolmunna í mörg ár

192
Deila:

Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar sl. nótt með 1.835 tonn af kolmunna. Þetta er þriðji kolmunnafarmurinn sem skipið landar á skömmum tíma. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Runólf Runólfsson skipstjóra um kolmunnaveiðarnar.

„Þessi veiðiferð gekk afskaplega vel og við fengum aflann um 60 mílur beint út af Norðfirði. Það er stutt að fara og þetta er eins þægilegt og það getur verið. Aflinn fékkst í fimm holum. Stærsta holið var 560 tonn og það minnsta um 200 tonn. Það er bara dregið yfir daginn. Við köstum klukkan hálfsjö á morgnana og drögum í tíu og hálfan tíma. Það er látið reka yfir nóttina því þá gengur fiskurinn upp í sjó og dreifir sér. Hér er um að ræða stóran og fallegan kolmunna, fiskurinn er í reynd ótrúlega fallegur. Nú er að fjölga skipum á miðunum. Víkingur og Venus eru að hefja kolmunnaveiðar og Börkur og Beitir eru farnir að veiða kolmunna á milli þess sem þeir veiða síld. Það er afskaplega ánægjulegt að geta veitt kolmunnann í íslenskri lögsögu en síðast gátum við það í einhverjum mæli sumarið 2018 ef ég man rétt. Við munum ljúka við að landa í kvöld og þá verður strax haldið á ný út til áframhaldandi veiða,“ segir Runólfur.

Börkur NK kom í gær til Neskaupstaðar með 630 tonn af síld og 250 tonn af kolmunna. Hann hóf löndun strax og lokið var við að landa liðlega 1.000 tonnum af síld úr Beiti NK. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri á Berki sagði að þeir hefðu tekið eitt kolmunnahol með síldartrollinu og það hefði bara gengið vel. „Þetta er sérstaklega stór og myndarlegur kolmunni sem þarna fæst. Við höfum ekki séð svona stóran kolmunna í mörg ár. Við munum ljúka við að landa í kvöld og þá verður örugglega strax haldið til kolmunnaveiða á ný,“ segir Hjörvar.

Beitir NK hélt til veiða að lokinni löndun í gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að hann veiði kolmunna fram á sunnudag en snúi sér þá að síldinni og komi inn til löndunar á mánudag.

 

Deila: