Fínasta fiskirí

200
Deila:

Það hefur verið fínasta fiskirí hjá Eyjunum að undanförnu. Bæði Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu fullfermi í Vestmannaeyjum sl. sunnudag og Bergey landaði á ný fullfermi á þriðjudag og Vestmannaey á miðvikudag. Bergey kom síðan til hafnar með 45 tonn í gær.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, segir að það sé að koma vertíðarbragur á veiðarnar. „Við höfum verið að afla vel og aflinn hefur verið blandaður. Við höfum mest verið á Víkinni og Pétursey, Selvogsbankanum og sunnan við Surt. Það hefur að mestu verið gott veður þannig að þetta hefur bara gengið nokkuð vel,“ segir Jón í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, tekur undir með Jóni og segir að vel hafi gengið að fiska. „Tveir síðustu túrar hjá okkur hafa gengið vel. Við höfum fyllt skipið á um tveimur sólarhringum. Annars finnst mér vertíðarfiskurinn vera heldur seint á ferðinni til dæmis inn á Selvogsbankann. Það er ekki enn komið það magn inn á svæðið sem gera má ráð fyrir þó fiskist ágætlega. Við höfum verið að eltast við allar tegundir að undanförnu og höfum helst verið að veiða á Pétursey og Vík, í Háfadýpinu og á Planinu við Einidrang. Mér finnst þetta líta ágætlega út,“ segir Birgir Þór.
Ljósmynd Guð.mundur Alfreðsson

 

Deila: