LS semur við Hampiðjuna og Voot

186
Deila:

Hinn 2. júní sl skrifuðu annars vegar Landssamband smábátaeigenda (LS) og hins vegar Hampiðjan/Voot undir samning þar sem félagsmönnum LS er boðinn afsláttur, 10%-40%, mismunandi eftir vöruflokkum. 

Á heimasíðu Hampiðjunnar er frétt af opnun glæsilegrar verslunar að Skarfabakka 4 við Sundahöfn. Hampiðjan/Voot eru með starfstöðvar í Reykjavík, á Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og í Vestmannaeyjum.  Samningurinn nær til allra þessara staða. 
Myndin er tekin í hinni nýju verslun á Skarfabakka, eftir undirritun samningsins. Á henni eru Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, Þorsteinn Finnbogason markaðsstjóri Voot, Ólafur Benónýsson verslunarstjóri og Arthur Bogason formaður LS

Deila: