Ný Bergey til heimahafnar í fyrsta sinn

225
Deila:

Skömmu fyrir hádegi í dag kom hin nýja Bergey VE til hafnar í Vestmannaeyjum í fyrsta sinn og var vel fagnað. Bergey var afhent Bergi-Hugin, dótturfyrirtæki Síldarvinnslunnar, hinn 1. október sl. og kom til Akureyrar hinn 6. október. Á Akureyri annaðist Slippurinn frágang á millidekki skipsins.

Bergey var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi og er eitt af sjö systurskipum sem skipasmíðastöðin smíðaði fyrir íslensk fyrirtæki. Eitt þessara skipa er Vestmannaey VE sem kom nýtt til landsins í júlímánuði sl. Skipin eru hin glæsilegustu og afar vel búin, en um er að ræða togskip sem eru 28,9 m að lengd og 12 m að breidd. Stærð þeirra er 611 brúttótonn. Eru skipin búin tveimur aðalvélum og tveimur skrúfum.

Bergey mun ekki staldra lengi við í Eyjum. Veiðarfæri verða tekin um borð og er gert ráð fyrir að haldið verði til veiða á morgun. Jón Valgeirsson skipstjóri segir í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar, að sér lítist mjög vel á skipið. „Það verður gaman að hefja veiðar á þessu nýja skipi. Á leiðinni frá Akureyri fengum við aðeins brælu úti fyrir Norðurlandinu og það lét ágætlega. Það eru öðruvísi hreyfingar á þessu skipi en á gömlu Bergey. Það er flott að hefja veiðar á nýju skipi á laugardegi: Laugardagur til lukku,“ sagði Jón glaður í bragði.

 

Deila: