Verðmæti útfluttra eldisafurða eykst mikið

86
Deila:

Verðmæti vöruútflutnings í mars 2021 jókst um 5 milljarða króna, eða um 8,8%, frá mars 2020, úr 56,5 milljörðum króna í 61,5 milljarða. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um 579 milljónir króna, eða 2,2% samanborið við mars 2020, útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst um 1,1 milljarð (4,2%) en útflutningsverðmæti landbúnaðarafurða jókst hins vegar um 103,4%, eða um 3,4 milljarða króna, úr 3,2 milljörðum í mars 2020 í 6,6 milljarða í mars 2021, og skýrist það nær eingöngu af mikilli aukningu í útflutningsverðmæti fiskeldis sem jókst um 100,3%, úr 2,7 milljörðum í mars 2020 í 5,5 milljarða í mars 2021.

Verðmæti vöruútflutnings á tólf mánaða tímabili, frá mars 2020 til mars 2021, var 634,6 milljarða króna og hækkaði um 17,3 milljarða króna miðað við sama tímabil ári fyrr eða um 2,8% á gengi hvors árs.. Iðnaðarvörur voru 48% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði og var verðmæti þeirra 1,2% meira en á tólf mánaða tímabili þar á undan. Sjávarafurðir voru 43% alls vöruútflutnings síðustu tólf mánuði en verðmæti þeirra jókst um 4% á milli tólf mánaða tímabila. Verðmæti útflutnings í fiskeldi jókst um 22,4% á sama tímabili samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

 

Deila: