Helmingi minni grásleppuafli

Deila:

Það sem af er vertíð eru komin á land 1.629 tonn af grásleppu. Þetta er nokkuð minni afli en á sama tíma á síðustu vertíð en þá höfðu 3.219 tonnum verið landað. Grásleppuaflinn er því tæplega helmingi minni á þessari vertíð miðað við vertíðina í fyrra.

Í stöplaritinu hér tað neðan má sjá grásleppuafla síðastliðnar sex vertíðir fram til 25. apríl.

Grásleppu afli Fiskistofa

Alls hafa 157 bátar sótt um leyfi til grásleppu-veiða á þessari vertíð. Fjöldi útgefinna leyfa er æði misjafn milli svæða. Aðeins fjögur leyfi hafa verið gefin út fyrir svæði G sem er svæðið frá Hvítingum  vestur til Garðskagavita en 77 leyfi fyrir svæði E sem nær frá Skagatá austur að Fonti á Langanesi.

Það sem af er vertíð er Finni NS-21  aflahæstur með 39,2 tonn en hann er gerður út á svæði F sem er Norðaustur-land. Næstur í röðinni er Glettingur NS-100 með 34,2 tonn. Á myndinni hér til hliðar má sjá tíu aflahæstu báta vertíðarinnar og einnig hvar þeir enduðu eftir síðustu vertíð. Á töflunni kemur fram að Finni NS-21 endaði í 103 sæti yfir aflahæstu bátanna á síðustu vertíð og Glettingur NS-100 Í 134 sæti.

Grásleppa afli Fiskistofa

 

 

Deila: