Myndbönd um öryggismál í fiskvinnslu

Deila:

Sjónvarpsstöðin N4 hefur gert sex myndbönd um öryggismál starfsfólks í fiskvinnslu en yfirskrift myndbandanna er „Öryggi er allra hagur.“

Myndböndunum er ætlað að vera fræðandi og benda á mikilvægi þess að allir sem koma að vinnslunni séu meðvitaðir um að öryggis- og hreinlætismál séu í góðu lagi.

Rannsóknarsjóður síldarútvegsins styrkti gerð myndbandanna og sérfræðingar Vinnueftirlitsins veittu faglega ráðgjöf og þekkingu.

Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins fagnar myndböndunum.

„SFS og ýmis fiskvinnslufyrirtæki hafa verið að gera ráðstafanir til að auka öryggi fiskvinnslufólks við sín störf og þetta fræðsluefni er mikilvægt skref í þá átt.“

María Björk Ingvadóttir framkvæmdastjóri N4 segir að framleiðsludeild N4 hafi á að skipa mjög hæfu fagfólki sem kunni vel til verka í gerð fræðslumyndbanda, og í þessu tilfelli hafi verið byggt á  ákveðinni sérþekkingu starfsfólks N4 úr sjávarútvegi og fiskvinnslu.

„Það er mikilvægt að fyrirtæki í fiskvinnslu bregðist við auknum fjölda vinnuslysa í fiskvinnslu á síðustu árum með aukinni fræðslu í vinnuvernd en komið hefur í ljós að slysin tengjast oftar en ekki vélbúnaði. Það er hagur allra.  ÚA veitti okkur aðgang að fiskiðjuveri sínu á Akureyri, þar sem öll aðstaða er til fyrirmyndar í öryggismálum og vinnuvernd.

Við á N4 erum stolt af þessu verkefni sem  vonandi nær athygli starfsfólks í fiskvinnslunni.

Við finnum fyrir sívaxandi áhuga fyrirtækja , ekki síst á landsbyggðunum, á að fá okkur til að framleiða fræðslu-og kynningarefni og vonandi sjá enn fleiri smá og stór fyrirtæki í landinu N4 sem vænlegan samstarfsaðila í því.“

Myndböndin verða aðgengileg á heimasíðu N4 og einnig á heimasíðu Vinnueftirlitsins og má sjá eitt þeirra á eftirfarandi slóð: https://www.n4.is/is/thaettir/file/likamsbeiting

 

 

 

 

 

Deila: