Hluthafafundur samþykkir kaupin á Ögurvík

Deila:

Á framhaldshluthafafundi HB Granda í gær kynntu starfsmenn Kviku banka hf. samantekt minnisblaðs um fyrirhuguð kaup HB Granda á öllu hlutafé Ögurvíkur í samræmi við ákvörðun hluthafa á upphaflegum hluthafafundi í októbermánuði. Í kjölfarið var tekin fyrir tillaga stjórnar til hluthafafundarins um að staðfesta ákvörðun stjórnar um kaupin. Var tillagan samþykkt með 95,8% atkvæða þeirra hluthafa sem fundinn sátu. Á móti voru hluthafar sem höfðu að baki sér 4,2% þess hlutafjár sem mætt var fyrir á fundinum.

Kynning á áliti FRK á kaupum HB Granda á Ögurvík ehf.

Deila: