Landa sumargotssíld hver af öðrum

Deila:

Beitir NK 1.450 tonnum af íslenskri sumargotssíld í Neskaupstað á sunnudag. Í morgun kom síðan Börkur NK með 2.060 tonn og í kjölfar hans sigldi Bjarni Ólafsson AK inn Norðfjörð með 1.220 tonn. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hálfdan Hálfdanarson skipstjóra á Berki og spurði hvernig veiðarnar gengju.

„Þetta er hálfgert nudd, en það er dagamunur á veiðinni. Síðan var hálfgerð bræla hjá okkur allan túrinn og ekki góðar aðstæður til veiða. Það er víst kominn vetur. Við vorum eina fimm daga að veiðum og fengum aflann í átta holum. Veiðarnar fóru fram 80-100 mílur vestur af Reykjanesi,“ segir Hálfdan.

Runólfur Runólfsson skipstjóri á Bjarna Ólafssyni segir að afli skipsins hafi fengist í fjórum holum í Faxadýpinu. Þetta er önnur veiðiferð Bjarna Ólafssonar á íslensku sumargotssíldinni en áður hafði skipið landað 960 tonnum.

 

Deila: