Góð veiðiferð hjá Höfrungi

Deila:

,,Heilt yfir gekk allt að óskum. Við vorum með rúmlega 900 tonna afla á 25 dögum. Lengst var veðrið gott og aflinn sömuleiðis en í lokin var komin haugabræla og aflabrögðin voru í samræmi við það síðustu fjóra sólarhringana,“ segir Arnar Haukur Ævarsson í samtali á heimasíðu HB Granda. Hann var skipstjóri á frystitogaranum Höfrungi III AK í síðustu veiðiferð.
Arnar Haukur segist hafa byrjað á að leita að djúpkarfa.
,,Við byrjuðum  veiðar í Skerjadjúpinu og færðum okkur svo út í Mykur en svo kallast álarnir fyrir utan Skerjadjúpið.“
Að sögn Arnars Hauks lá leiðin næst á Fjöllin eða hin hefðbundnu heimamið togara HB Granda.
,,Þar fengum við gullkarfa og ufsa og aflabrögðin voru góð. Eftir það ákvað ég að fara norður á Vestfjarðamið. Áður en til þess kom fórum við inn til Reykjavíkur í millilöndun eftir tíu daga úthald með um 350 tonna afla.“
Á Vestfjarðamiðum var aflinn góður.
,,Við fengum ufsa og þorsk á Halanum og gullkarfa í Víkurálnum. Einnig fengum við dálítið af ýsu á Hornbanka. Þegar þorskskammtinum fyrir veiðiferðina var náð ákvað ég að enda veiðiferðina í Skerjadjúpinu. Því miður var komin bræla þegar við komum þangað. Við vorum þó á svæðinu í fjóra sólarhringa en vegna veðurs var erfitt að stunda veiðar,“ segir Arnar Haukur Ævarsson.
Höfrungur III er nú að veiðum við suðausturströndina og segir Haraldur Árnason skipstjóri að hann hafi ætlað norður á Vestfjarðamið um leið og skipið lét úr höfn. Þá var hins vegar komin bræla á miðunum og hefur hún staðið linnulaust í heila viku. Það var fyrst í dag að veður byrjaði að ganga niður fyrir vestan.

Deila: