Hvalurinn aflífaður

Deila:

Grindhvalurinn sem var í vandræðum í sjónum við Eiðsgranda í Vesturbæ Reykjavíkur í gær var aflífaður á sjötta tímanum af Landhelgisgæslunni. Tilraunir til að bjarga hvalnum tókust ekki, enda var líkamlegt ástand hans slæmt

Frá því í gærmorgun höfðu björgunarsveitarmenn og aðrir viðbragðsaðilar unnið að björgun grindhvals sem rak að landi í Káravík við Seltjarnarnes. Eftir nokkurra klukkustunda björgunaraðgerðir var ljóst að mjög hafði dregið af hvalnum og var það mat dýralæknis Matvælastofnunar að nauðsynlegt væri að binda enda á þjáningar dýrsins.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór þess á leit við Landhelgisgæslu Íslands að séraðgerða- og sprengjueyðingarsvið LHG yrði kallað út með viðeigandi búnað. Að beiðni dýralæknis MAST var dýrið aflífað á sjötta tímanum. Í framhaldinu var dýrinu sökkt.

 

Deila: