7% tekjuvöxtur og 13,5% EBIT hjá Marel

209
Deila:

Samkvæmt óendurskoðuðu bráðabirgðauppgjöri Marel fyrir árið 2019 hækka tekjur félagsins um 7% á milli ára og nema 1.284 milljónum evra (2018: 1.198m). Þar af voru tekjur fjórða ársfjórðungs 320 milljónir evra (4F18: 331m). EBIT framlegð fyrir árið 2019 var um 13,5% (2018: 14,6%), sem skýrist af lágri 10% EBIT framlegð á fjórða ársfjórðungi 2019 (4F18: 14,6%). Þessa tímabundnu lækkun á rekstrarniðurstöðu má einkum rekja til óhagstæðrar samsetningar milli iðnaðar og vörutegunda, sem og hækkunar á kostnaði til að mæta breytingum á eftirspurn eftir heimshlutum.

Pantanir í ársfjórðungnum námu 303 milljónum evra (4F18: 296m). Frjálst sjóðstreymi í fjórðungnum var sterkt eða 53 milljónir evra (4F18: 41m), en auknar innborganir á pantanir í lok fjórðungsins gefa til kynna betri horfur á markaði og aukna eftirspurn frá viðskiptavinum félagsins.

Markmið félagsins um 12% árlegan meðalvöxt tekna yfir tímabilið 2017-2026 er óbreytt.

„Við birtum þessa tilkynningu um meginniðurstöður ársins nú í ljósi þess að rekstrarniðurstöður sýna í kringum 10% EBIT framlegð í fjórða ársfjórðungi, sem er undir væntingum. Þetta þýðir að við lokum árinu með um 13,5% EBIT framlegð, en hún hefur verið um 14-15% síðustu ár. Á sama tíma náðum við að skila 7% tekjuvexti og EBIT var svipað á milli ára.

Í samstarfi við viðskiptavini okkar höfum við komist í gegnum erfitt tímabil þar sem markaðsaðstæður lituðust af viðskiptahindrunum og umróti á heimsmörkuðum. Við horfum nú fram á bjartari tíma og merkjum aukna eftirspurn og vilja til fjárfestinga á markaði. Horfur fyrir pantanir eru góðar og með aðgerðum til að straumlínulaga rekstur félagsins má búast við auknum tekjum og bættri arðsemi jafnt og þétt eftir því sem líður á árið. Með framsæknu vöru- og þjónustuframboði, alþjóðlegu sölu- og þjónustuneti og sterkri fjárhagsstöðu, stefnir Marel áfram að 12% árlegum meðalvexti tekna yfir tímabilið 2017-2026 með hækkandi EBIT framlegð,“ Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel:

Bráðbirgðaniðurstöðurnar eru óendurskoðaðar og gætu tekið breytingum. Marel mun birta afkomu fyrir fjórða ársfjórðung og árið í heild sinni á bæði NASDAQ Ísland og Euronext Amsterdam kauphöllunum samkvæmt fjárhagsdagatali sínu þann 5. febrúar 2020.

Þann 6. febrúar kl. 8.30 mun Marel halda afkomufund fyrir markaðsaðila í höfuðstöðvum félagsins, þar sem forstjórinn Árni Oddur Þórðarson og fjármálastjórinn Linda Jónsdóttir munu kynna afkomu ársins og helstu atriði úr rekstri.

Fundinum verður einnig vefvarpað beint á www.marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á www.marel.com/IR eftir fundinn. Markaðsaðilum gefst einnig tækifæri til að hringja inn á fundina.

 

 

Deila: