Funda um hrognkelsi í Hólminum

295
Deila:

Snæfell félag smábátaeigenda á Snæfellsnesi hefur boðað til fundar um grásleppumál í dag 30. janúar.  Fundurinn verður haldinn í Ráðhúsinu Stykkishólmi og hefst kl 17:00.  Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur þekkst boð Snæfells að mæta á fundinn.  Hann mun ávarpa fundargesti og svara fyrirspurnum.

Á fundinum verður farið yfir drög að reglugerð um hrognkelsaveiðar 2020 sem mun m.a. innihalda ákvæði um lokun svæða sem ætlað er að draga úr veiðum á sel sem meðafla.  Jafnframt verður fjallað um möguleika á að endurheimta MSC vottun grásleppuveiða, markaðsmál og næstu vertíð.

„Þar sem hér er um gríðarlegt hagsmunamál fyrir grásleppusjómenn, einstök byggðarlög og grásleppuhrognamarkaðinn er áríðandi að sem flestir mæti á fundinn.  Á vertíðinni 2019 var heildarveiði grásleppu um 5.000 tonn þar af veiddist í Breiðafirði tæpur þriðjungur.  Mestu var landað í Stykkishólmi um 1.100 tonnum.

Auk sjávarútvegsráðherra verða frummælendur á fundinum frá Snæfelli, LS, sjávarútvegsráðuneytinu og grásleppukavíarframleiðendum.

Framtíð grásleppuveiða – grein eftir Örn Pálsson – Brimfaxi 2. tbl. 2019.pdf

 

Deila: