Trefjar selja bát til Noregs

146
Deila:

Útgerðarfélagið RM Kystfiske AS fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni standa feðgarnir Roy Skår og Roy-Morten Skår. Roy-Morten verður skipstjóri á bátnum, faðir hans Roy hefur verið lengi í útgerð stærri skipa í Noregi

Nýi báturinn heitir Skårungen. Báturinn er 11 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn.  Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 650 hestörfl tengd frístandandi ZF325IV gír.

Rafstöð er af gerðinni Nogva / Nanni. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC og Olex. Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins. Báturinn er útbúinn til netaveiða.  Netabúnaður kemur frá Lorentzen í Noregi. Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 15 380 lítra kör í lest.  Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.
Bátnum er kominn til Noregs hefur þegar hafið veiðar.

 

Deila: