Týr við eftirlit í Síldarsmugunni

253
Deila:

Varðskipið Týr hefur undanfarna daga verið við eftirlit í Síldarsmugunni en þangað hélt áhöfn Týs á fimmtudaginn. Þegar mest var voru fjórtán íslensk uppsjávarskip á svæðinu í byrjun síðustu viku en í gærmorgun voru þau orðin sjö.

Alls voru 27 skip auðkennd á slóðinni og reyndust þau öll hafa gild leyfi til veiða. Varðskipsmenn héldu til eftirlits í eitt íslenskt uppsjávarskip um helgina og þar var allt með besta móti. Aflabrögð skipanna voru ekki góð og því voru flest þeirra farin á ferðina að leita þegar varðskipið Týr yfirgaf svæðið. Skipin voru á veiðum um 300 sjómílur austur af landinu.

Nokkur ár eru síðan íslenskt varðskip var síðast við eftirlit í Síldarsmugunni. Landhelgisgæslan hefur alþjóðlegum eftirlitsskyldum að gegna á svæðinu sem aðili að Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðiráðinu (NEAFC).

 

Deila: