Helmingur grásleppukarla vill kvóta

124
Deila:

Grásleppusjómenn afhentu sjávarútvegsráðherra stuðningsyfirlýsingu í gærmorgun við frumvarp hans um kvótasetningu grásleppuveiða. Ríflega helmingur leyfishafa grásleppuveiða skrifaði undir. Ráðherrann segir að þetta sýni þörfina á að breyta veiðistjórnun tegundarinnar. Frá þessu er sagt á visir.is

64 sendu inn umsagnir í Samráðsgátt stjórnvalda um frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra um kvótasetningu á grásleppu og fleiri tegundum en umsagnarfrestur rann út um miðjan september. Þar komu fram afar skiptar skoðanir um málið. Nokkrir grásleppusjómenn tóku sig saman og leituð eftir undirskriftum við stuðning við frumvarpið frá leyfishöfum grásleppuveiða og söfnuðu 244 undirskriftum eða 54% af þeim sem halda á leyfunum. Þeir skiluðu sjávarútvegsráðherra stuðningsyfirlýsingunni í dag.

Stefán Guðmundsson grásleppusjómaður á Húsavík er einn forsvarsmanna stuðningsyfirlýsingarinnar.

„Það er algjörlega augljóst að menn eru fylgjandi þannig stýringu í dag. Ekki síst eftir útreiðina á síðustu vertíð þar sem var klippt var á vertíðina til að ráðherra gæti farið að ráðgjöf Hafró í heildarmagni veiða,“ segir Stefán.

Ef frumvarpið yrði að lögum væri slíkt úr sögunni.

„Menn sjá það að veiðimenn hafi jafnvel 3 mánaða glugga og geti farið að veiða þegar þeim hentar miðað við veður og aðstæður. Og geti þá sótt það magn sem hverjum og einum er þá heimilt að sækja,“ segir hann.

Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegsráðherra segir stuðninginn sýna þörf á breytingu á núverandi fyrirkomulagi.

„Mér finnst líklegt í ljósi þess sterka vilja sem þarna kemur fram að fólk sjái þörfina á að breyta veiðistjórnun á grásleppu, sæbjúgum og ígulkerum sem frumvarpið fjallar um,“ segir hann.

 

Deila: