Fiskimjölsverksmiðjn í Neskaupstað stækkuð og afköst við hrognavinnslu aukin

95
Deila:

Ákvörðun hefur verið tekin um að stækka fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað og auka afköst við hrognavinnslu um helming. Eftir stækkunina verður í verksmiðjunni eining eða lítil verksmiðja sem hentar sérstaklega til að vinna afskurð frá fiskiðjuveri fyrirtækisins. Frá þessu er greina á heimasíðu félagsins.

Fyrir liggur að fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eru of margar og mikilvægt að auka hagræðingu í fiskimjölsiðnaðinum. Síldarvinnslan lokaði verksmiðju sinni í Helguvík á síðasta ári og var það liður í hagræðingaraðgerðum. Á Íslandi er búið við þær aðstæður að verksmiðjurnar þurfa að geta unnið mikinn afla á skömmum tíma og er því nauðsynlegt að þær séu afkastamiklar. Einnig eru aðstæður oft þannig að einungis þarf að vinna afskurð frá manneldisvinnslu og til þess þarf ekki afkastamikla verksmiðju heldur er mikilvægt að geta unnið hráefnið jafnóðum. Ákvörðun um stækkun verksmiðjunnar í Neskaupstað og uppsetningu litlu verksmiðjueiningarinnar tekur mið af þessum aðstæðum. Þegar hefur fengist starfsleyfi fyrir verksmiðju í Neskaupstað sem á að geta afkastað 2380 tonnum á sólarhring en gert er ráð fyrir að litla verksmiðjan afkasti 100-380 tonnum. Nú afkastar verksmiðjan í Neskaupstað að hámarki 1400 tonnum á sólarhring.

Hin auknu afköst munu gera kleift að vinna stóra farma á ásættanlegum tíma og litla verksmiðjan verður með sveigjanlegum afköstum þannig að unnt verður að vinna allt hráefni sem ferskast. Með þessu fyrirkomulagi ætti orkunýting að vera eins og best þekkist. Með tilkomu litlu verksmiðjunnar verður lögð áhersla á að auka gæði framleiðslunnar og þróa áfram aðferðir til að framleiða verðmætar próteinríkar afurðir.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við verksmiðjuna verði skipt í tvo áfanga. Í fyrri áfanganum verður reist 2000 fermetra hús með öllu tilheyrandi, þar á meðal öflugri loftræstingu og lykteyðingarbúnaði. Þá verður allur búnaður í litlu verksmiðjuna keyptur og hún sett upp. Gert er ráð fyrir að kostnaður við fyrri áfangann verði um 2,3 milljarðar króna. Í síðari áfanganum verður komið upp búnaði í verksmiðjunni sem eykur afkastagetu hennar í 2380 tonn. Unnt verður að koma búnaðinum fyrir í skrefum þannig að framkvæmdir munu ekki trufla starfsemi verksmiðjunnar. Áætlaður kostnaður við þennan síðari áfanga er um 2 milljarðar króna.

Einnig er ákveðið að ráðast í verulegar framkvæmdir við stækkun á hrognavinnslunni. Til dæmis þarf að stækka löndunarhús um 300 fermetra og fjárfesta í nýjum búnaði. Gert er ráð fyrir að kostnaður við þær framkvæmdir verði hátt í 500 milljónir króna.
Myndin sýnir verksmiðjuna eftir fyrirhugaða stækkun séð frá norðri. Nýbyggingar eru gular að lit með dekkri þökum

 

Deila: