Farsæll með mikið af steinbít

244
Deila:

Farsæll SH 30 kom til hafnar í Grundarfirði.  Heildarmagn afla um borð var um 77 tonn og uppistaða aflans var steinbítur. Heimasíða Fisk Seafood hafði samband við Stefán V. Ólafsson stýrimann og spurði út í túrinn.

„Við vorum í rúma fimm sólarhringa í þessum túr. Við byrjuðum uppá Fláka en fórum svo að fikra okkur norður á Vestfjarðarmið. Veiðarnar gengu þokkalega og það var bara þokkalegasta veður þennan túrinn. Aflinn er samansettur af steinbít, þorski og kola,“ sagði Stefán.

 

Deila: