Fagnar námaleyfi fyrir kalkþörunga

197
Deila:

Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segist fagna heilshugar því að Orkustofnun hafi gefið út námalyfi fyrir Íslenska kalkþörungafélagið ehf til þess að sækja og vinna kalkþörunga af hafsbotni í Ísafjarðardjúpi.

Hér er mikilvægum áfanga lokið í einhverju sem hófst með viljayfirlýsingu í nóvember 2014 segir Bragi Þór í samtali við fréttavefinn bb.is. „Það eru komin rétt 6 og hálft ár frá því aðilar voru sammála um að byggja verksmiðju í Álftafirði. Síðan hefur heilmikið gerst en ekki á þeim hraða sem aðilar væntanlega sáu fyrir sér í fyrstu. Skipulagsmál þar fyrirferðamest.“

Um framhaldið sagði Bragi Þór:

„Líkt og Halldór Halldórsson framkvæmdastjóri víkur að, í frétt um nýtingarleyfið lægi fyrir, þá höfum við í Súðavíkurhreppi verið að setja saman fyrstu drög að samningi milli aðila. Það er svo smekksatriði hvort skerpt verður á viljayfirlýsingu áður en samið er, en hefur auðvitað þýðingu út í samfélagið.

Ljóst er að framkvæmdir þurfa að fara að raungerast í að klára landfyllingu, fyrirstöðukant og hönnun hafnarinnar. Er það enda sá partur sem snýr að sveitarfélaginu og ríkinu. Ég raunar bíð spenntur eftir því hvernig þokast með rafmagnsmálin. Það kemur í ljós hver raunverulegur vilji er til þess að efla atvinnu á norðanverðum Vestfjörðum og koma af stað örlítilli viðspyrnu til hagsælda fyrir samfélagið allt.

En þetta er að sjálfsögðu mikilvægur kafli í því að koma þessu á framkvæmdastig.“

 

Deila: