Ráðgjöf í grásleppu hækkuð um 74%

142
Deila:

Hafrannsóknastofnunar ráðleggur að veiðar á grásleppu fiskveiðiárið 2020/2021 verði ekki meiri en 9.040 tonn. Er það um 74% hækkun milli ára. Ráðgjöfin byggir að mestu á stofnvístölu úr stofnmælingu botnfiska í mars 2021 en hún var sú hæsta frá upphafi mælinga 1985.

Stofnvísitölur hrognkelsa sveiflast milli ára sem endurspeglar að hluta til óvissu í mælingunum. Vegna þessa vegur stofnvísitala sama árs 70% á móti 30% vægi vísitölu fyrra árs við útreikning ráðlagðs hámarksafla. Hafrannsóknastofnun leggur jafnframt til að upphafsaflamark fiskveiðiárið 2021/2022 verði 3.174 tonn.

Ráðgjöfin er samkvæmt nýrri ráðgjafareglu Hafrannsóknastofnunar fyrir grásleppu sem kynnt var á árinu og miðar við vísitölu veiðihlutfalls (Fproxy) 0.75.

Smelltu á hlekkina til að opna ráðgjafarskjal og tækniskýrslu.

 

Deila: