Navis með áherslu á græn kerfi fyrir fiskiskip

140
Deila:

Navis býr yfir mikilli reynslu í skipahönnun og skipaverkfræði og hefur lengi smíðað skip fyrir íslenskan sjávarútveg. Nú leggur fyrirtækið mikla áherslu á græn kerfi fyrir fiskiskip.

„Við einbeitum okkur að grænum kerfum og höfum þróað rafknúið fiskiskip. Það er línubátur til strandveiða. Smíðin er ekki hafin, en þróunarvinnu er lokið og allt er tilbúið til að hefjast handa,” segir Bjarni Hjartarson hjá Navis í samtali á heimasíðu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.

„Við erum líka að vinna mikið að þróun á grænum lausnum með vetni og öðru eldsneyti.”

Í gegnum árin hefur Navis tekið þátt í mörgum verkefnum, allt frá nýsmíði til aðlögunar og endursmíði skipa frá 10 metra löngum og alveg upp í 120 metra skip, þar sem tekist er á við allt frá fiskiskipum til þjónustuskipa og gámaskipa.

„Nýjasta fiskiskipið okkar er Páll Jónsson GK-7, sem var hannaður fyrir Vísi í Grindavík og smíðaður hjá Alkor skipasmíðastöðinni í Póllandi. Hann var afhentur í febrúar á síðasta ári. ”

Hinn 45 metra langi Páll Jónsson kom í staðinn fyrir eldra skip með sama nafni, og fékk fyrirtækið þá mun hagkvæmara línuskip sem gerði það mögulegt að vera með betri vistarverur fyrir áhöfnina og nútímalegt fyrirkomulag á vinnsludekki.

Þetta árið mætir Navis aftur til leiks á Íslensku sjávarútvegssýningunni.

„Við teljum sýninguna vera einstakan viðburð. Þar fáum við fréttir af því sem er að gerast í greininni og fáum tækifæri til að hitta nýja viðskiptavini og mynda ný sambönd,” segir hann.

 

Deila: