Grunur um kóvídsmit í fiskvinnslu VSV
Grunur leikur á að starfsmaður í fiskvinnslu Vinnslustöðvarinnar sé veikur af kórónuveirunni en það fæst ekki staðfest fyrr en í dag.
Viðbragðsáætlun fyrirtækisins var virkjuð þegar í stað og í dag voru um 100 starfsmenn í fiskvinnslu og á skrifstofu PCR-prófaðir.
Niðurstaða prófana er beðið en þeirra er ekki að vænta fyrr en síðar í dag, mánudag.