Allir starfsmenn Samherja skimaðir

Deila:

Allt starfsfólk vinnsluhúsa ÚA og Samherja á Akureyri og Dalvík var skimað í gærmorgun og áhafnir skipa voru sömuleiðis skimaðar fyrir brottför.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir í samtali á heimasíðu félagsins, að starfsfólkið hafi verið skimað í ljósi þess að margir hafi snúið til baka úr jóla- og áramótafríi eftir að hafa dvalið víða um land og sumir hverjir erlendis. Í ljósi hraðrar útbreiðslu Covid þessa dagana sé afskaplega mikilvægt að gæta fyllsta öryggis.

Faraldurinn enn í vexti

„Við megum auðvitað ekki við því að starfsemin stöðvist og þess vegna var ákveðið að skima alla þegar hjólin eru að fara að snúast að nýju. Skimunin gekk vel fyrir sig og sem betur eru allir neikvæðir og fyrir það er ég þakklátur. Miðað við fjölda smita í þjóðfélaginu er ljóst að starfsfólk okkar hefur farið varlega og verið á varðbergi. Samkvæmt nýjustu tölum greindust nærri áttahundruð með Covid innanlands í gær og nærri eitthundrað á landamærum. Við þetta bætist svo að mörg þúsund eru í einangrun eða sóttkví. Þessi nýjasta bylgja faraldursins er enn í vexti og við verðum að gæta fyllsta öryggis.“

Starfsólkið fer eftir ráðleggingum sóttvarnaryfirvalda

Starfsmenn vinnsluhúsanna á Dalvík og Akureyri eru liðlega tvöhundruð. Öll skip Samherja og ÚA eru farin á veiðar. Áhafnirnar, átta talsins, voru skimaðar fyrir brottför. 

„Sérfræðingar í Covid áætla að smittölur verði áfram háar, þannig að það er ekkert annað í stöðunni en að fara eins varlega eins og hægt er. Ég svo sem bjóst alveg eins við einhverjum jákvæðum niðurstöðum í morgun en starfsfólkið hefur sannarlega farið eftir ráðleggingum sóttvarnaryfirvalda, sem gefur manni tilefni til ákveðinnar bjartsýni í upphafi ársins,“ segir Þorsteinn Már.

Hérna fyrir neðan eru myndir af þremur skipum er þau héldu til veiða og eins og fram kemur í fréttinni reyndist enginn jákvæður við skimun.

Cuxhaven NC var á Akureyri um jól og áramót.
Kaldbakur EA heldur til veiða.
Vilhelm Þorsteinsson leggur af stað í fyrsta túr ársins
Deila: