Manni bjargað af lekum bát

Deila:

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst í gær neyðarkall frá fiskibáti sem staddur var 28 sjómílur vestur af Straumnesi eftir að leki kom upp í vélarrúmi hans. Einn var um borð í bátnum og fylltist vélarrúmið hratt.

Svo heppilega vildi til að bæði þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LIF, og varðskipið Týr voru stödd á nálægum slóðum þegar neyðarkallið barst. Líf var við Straumnes og Týr var í Aðalvík.  Áhafnir Týs og Lífar héldu þegar í stað á vettvang auk þess sem björgunarskipið Gunnar Friðriksson var ræst út frá Ísafirði. Skip í grenndinni voru einnig beðin um að halda á vettvang.

Þyrlan Líf var komin að bátnum um 13 mínútum eftir að neyðarkallið barst og áhöfn hennar bað skipverjann að fara strax í flotgalla. Hann kom sér svo yfir í fiskibát sem kom til aðstoðar og tók bátinn í tog. Varðskipsmenn hófu svo björgunaraðgerðir stuttu seinna.  Greiðlega gekk að koma dælu frá varðskipinu fyrir í bátnum og skömmu síðar tókst að dæla sjónum úr vélarrúminu.

 

Deila: